Nýarsdagur á Flórens 1921
Við Ingólfur fórum að skoða hið ný upprunna ár. Teiknaði ein mynd af ítalskskri stúlku. Um kvöldið söng ég í fyrsta skipti fyrir áheyrendur á Ítalíu, þ. á m. Sverri konung, þrisvar sinnum.
2. janúar 1921
Skoðaði fagurt höggmyndasafn með Ingólfi, þ.á m. myndir eftir Michaelangelo . Skoðuðum einnig klaustur eftir hádegi skammt frá Flórens. Þar eru krúnurakaðir hvítkápumunkar. Þar standa betlarar á tröppum úti og gerast mjög ósjalfbjarga við návist manna.
3. janúar 1921
Ég fékk leyfisbréf að söfnum. Teiknaði Faunhöfuð á Piassa Signória. Eftir hádegi fórum við Ingólfur upp á hæðir fyrir utan Michaelangelos torg. Teiknaði þar dálítið. Fór í bíó um kvöldið ásamt flestu vistfólkinu. Veður milt og sólskin.