Bingólerað við Stephan G.
10. júlí 1953
Unnið allan daginn  að Niðarósslampanum. Lauk einnig við að fága eirsteypu af smalanum. Var að pípólera og bingólera við eirmyndirnar af Stephani G. St. Háttaði dauðlúinn, svaf illa bæði af gigtinni gömlu og taugaspenningi.

Varmahlíð  16. júlí 1953
Til Skagafjarðar með áætlunarbíl. Bjó í Varmahlíð. Samdi þar ræðu til að halda við afhendingu varðans. Fór um kvöldið upp að Stapa til að yfirlíta unnið verk og segja fyrir um þau næstu. Tvær lágmyndir komnar á sinn stað. Skriftir til miðnættis.

Föstudagurinn 17. júlí 1953
Orti kvæðið í Arnarstapagili, sem ég flutti við vígsluna.

Sunnudagurinn 19. júlí
Vígsluhátíðn mikla og en enn skein sól glatt í Skagafirði eins og undanfarna daga. Ég fór með nefndinni í bíl upp að Arnarstapa  klukkan rúmlega eitt. Þá var þar þegar kominn fjöldi fólks og allur undirbúningur hátíðahaldsins búinn. Hátíðasvæðið var fánum skreytt  og ræðupallur skreyttur fánalitum og lyngi. Hávaðameistarar höfðu verið fengnir úr Reykjavík, höfðu þeir komið fyrir nokkrum hátölurum, enda heyrðist mál manna langt út fyrir hátíðasvæðið.
mannfjöldi streymdi nú að í alls konar bíltegundum að austan og vestan, norðan og sunnan – sem sagt úr öllum átttum.
Nokkrir komu þeysandi á skagfirzkum léttfetum eins og í gamla daga, og fannst mér það skreyta eigi alllítið samkomuna og móana þar í kring.



Til baka

OZON-Vefumsjónarkerfið