Piparvísur Piparsveinar hlaupa hratt, hverfa lítt að freyjum. Þeir ættu að borga extra-skatt af öllum piparmeyjum!
Það er synd og svívirða að sjá þær þreyja og bíða. Alla karlmenn ógifta ætti að taka og hýða.
Stjórnmálafundur Harsvíraðir hótarar hömpuðu feitum spöðum, en sauðmeinlausir soðfantar sváfu í löngum röðum.
Mannlýsing Refs er auga, refs er tönn, refs er nef og glottið. Þessi líking þykir sönn, þó hann vanti skottið.
|