Fjöldi verka Ríkarðs Jónssonar eru þjóðþekkt. Í þessu verkefni munu nemendur kynnast þessum verkum og vinna heimavinnu í tengslum við það. Það reynir á sjálfstæð vinnubrögð í upplýsingaöflun þar sem rikardssafn.is er námsefnið.
Markmið:
- Að nemendur noti rikardssafn.is til að afla sér upplýsinga.
- Að nemendur læri að þekkja verk Ríkarðs Jónssonar
- Að nemendur þjálfist í leit að upplýsingumá vefnum.
- Að nemendur vandi vel til úrlausna á þeim upplýsingum sem þeir afla sér.
Viðfangsefni:
Nemendur fara inn á rikardssafn.is og finna þar dæmi um þrjú þekkt verk, heiti þeirra og myndir af verkunum. Að svo búnu á hver nemandi að velja sér eitt verk, fjalla um það frekar og kynna fyrir samnemendum sínum.
Dæmi um þekkt verk:
Spegillinn
Ólafur Liljurós
Hallgrímur Pétursson
Skjaldarmerkið
Matthías Jochumson
Fundarhamar Sameinuðu Þjóðanna
Eldmessan á Prestsbakka á Síðu
Kristsmynd í Bessastaðakirkju
Kennsluaðferð/kennsluskipulag:
Kennari sýnir nemendum hvernig vefurinn er uppbyggður með skjákynningu. Hann sýnir dæmi um þekkt verk listamannsins og útskýrir og segir sögu þess. Nemendur velja sér eitt verk og kynna það fyrir samnemendum. Kennari hvetur til líflegra og fjölbreytilegra kynninga. Nemendur vinni verkefnið heima. Ef nemendur hafa ekki aðgang að nettengdri tölvu heima má vinna verkefnið í tölvuveri skólans.
Mikilvægt er að gera kröfu til nemenda að þeir vandi vel til verka þegar kemur að kynningu verksins sem þeir hafa valið sér.