Dagbók

Ríkarður hélt dagbækur samfellt frá 1952. Þar stendur venjulega eitthvað um það, að hvaða verki listamaðurinn vinnur hverju sinni. Í sambandi við verk sín kynnist hann einnig mörgu fólki sem hann segir frá. Allar þessar bækur eru skreyttar með smáteikningum. Einkum eru þær um viðfangsefni dagsins og teiknar hann þar oft hamar. En við lausavísur teiknar hann alltaf hörpu. Þá eru stundum teikningar af dýrum, einkum heimiliskettinum, því Ríkarður er mikill dýravinur. Þá er í bókunum mikið af kvæðum og lausavísum. Flest er þetta ort af honum sjálfum, því að Ríkarður yrkir ekki aðeins í tré og leir, heldur einnig með orðum. Þá er „vísa dagsins”, sumar frumsamdar, aðrar úr ýmsum áttum, gamanvísur eða gamlir húsgangar. Í hverri dagbók er orðasafn. Þar eru m.a. sjaldgæf orð, sem Ríkarður vill halda til haga úr átthögum sínum, Hálsaþingá,  og skýringar á þeim.

Ríkarður hélt einnig dagbækur á ferðalögum sínum og til eru dagbækur frá Ítalíuför Ríkarðs, en með honum þar voru Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og Ingólfur læknir, Gíslason frá Vopnafirði.



Til baka

OZON-Vefumsjónarkerfið