Það kom fljótlega í ljós að verkin hans Ríkarðs var hægt að flokka í spennandi viðfangsefni:
Kirkjulist: skírnarfontar, sálmatöflur, myndir af prestum o.fl.
Sjómennska: bátar, fiskur, þang, skeljar.
Sveitarómantík: Burstabæir, verkfæri, askar, spænir og lárar.
Víkingar: Mynstur, skip, drykkjarhorn, fornir kappar, höfðaletur og rúnir.
Þjóðsögur: vættir, tröll og hamrabúar.
Þemanám felur í sér fjölmörg tækifæri fyrir nemendur að taka virkan þátt í undirbúningi og mótun viðfangsefnanna. Jafnframt fá þeir tækifæri til að nálgast viðfangsefnið frá fleiru en einu sjónarhorni og kafa dýpra í efnið. Vinnubrögð í þemanámi geta verið mjög fjölbreytileg. Þar má nefna sjálfstæða skipulagningu verkefna, umræður, leikræna tjáningu, skapandi ritun, að læra að nota kort og heimildir af ýmsu tagi, fjölbreytilegan lestur, finna lykilorð og að læra að nota margvíslegar aðferðir við úrvinnslu og skil.
(Lilja 1996:10)
Myndir af verkum Ríkarðs er frábær kveikja í þemanámi. Með kveikju er átt við aðferð sem kennari getur notað til að hleypa verkefni af stað.
Samþætting námsgreina:
Ríkarður Jónsson hafði óþrjótandi og lifandi áhuga á öllu þjóðlegu. Það kemur sterklega fram í vinnu hans hvort sem var í teikningum af hamragoði eða bóndakonu í peysufötum, útskornum aski og spæni eða lágmynd af banakossi í þjóðsögunni um Ólaf Liljurós. Allt gefur þetta tilefni til samþættinga námsgreina.
Náttúrufræði:
Hér væri nærtækt að skoða meðframt fjöruferð útskurð hans af skeljum, blöðruþangi eða fiskum.
Móðurmálskennsla:
Skáld og rithöfunda mótaði hann í leir, steypti í gips og brons og gerði ódauðlega.
Matthías Jochumson, Hallgrímur Pétursson, Jónas Hallgrímsson, Stephan G Stephansen.
Ríkarður myndskeytti þjóðsögur og ævintýr og eru teikningar hans af tröllum og marvættum gott dæmi um það.
Hann skrifaði líka dagbók á hverjum degi þar er að finna upplýsingar um verk sem hann var að vinna að, teikningar og lausavísur sem hann fann eða orti sjálfur. Einnig safnaði hann orðum og orðaskýringum því hann vildi halda í gömul íslensk orð.
Samfélagsfræði:
Til eru verk sem sýna torfbæi og baðstofur, sjómenn í sjóstökkum á róðrabát.