Ríkarður teiknaði mörg andlitin á langri starfsævi. Hann gerði vinnuskissur af fyrirmyndum sínum sem hann síðar mótaði í leir og steypti í gips eða brons. Einnig teiknaði hann fjöldann alllan af þekktu fólki og óþekktu og fróðlegt er að skoða ólíkar útfærslur eftir því hvaða teikniáhöld hann notaði: kol, blek eða blýant. Hann þótti ná svip og persónueinkennum fólks vel eins og sjá má á teikningunum á rikardsafn.is. Ríkarður hélt dagbók í áratugi. Þar er að finna upplýsingar um verk sem hann var að vinna að, teikningar og lausavísur sem hann heyrði eða orti sjálfur. Einnig safnaði hann orðum og orðskýringum því hann vildi halda í gömul íslensk orð.
Markmið:
- Að nemendur rannsaki mynddæmi af verkum Ríkarðs Jónssonar, nýti og prófi sig áfram í eigin teikningum.
- Að nemendur skoði og nýti sér fjölbreytileika línunnar og áferðar í andlitsteikningum.
- Að nemendur nýti sér fjölbreytt teikniáhöld við vinnu sína.
Viðfangsefni 1:
Andlitsteikning/portrett
Nemendur geri margar skissur af andlitum með mismunandi teikniáhöldum s.s. blýanta, blek, kol, krít og litblýanta og að lokum eina fullunna sjálfsmynd. Sjálfsmyndina má vinna eftir ljósmynd.
Viðfangsefni 2:
Dagbók
Í upphafi námskeiðs afhendir kennari hverjum nemanda dagbók. Í hana á að teikna litla mynd, mynstur eða hvað sem á hverjum degi. Í lok tímabilsins er til safn af æfingum með allavega blýi, mjúkum, hörðum línum, láréttum og lóðréttum. Þetta verkefni er tilefni samþættingar í ritun, myndskreytt dagbók með sterkum höfundareinkennum hvers nemanda.
Kennsluaðferð/kennsluskipulag:
Í viðfangsefni 1 er ætlast til að nemendur skoði andlitsteikningar Ríkarðs Jónssonar á rikardssafn.is og skoði mismunandi útfærslur þeirra. Kennari bendir á og skoðar með nemendum hlutföll og form, hvernig augun eru teiknuð, nef o.s.frv. Þegar innlögn hefur farið fram útdeilir hann speglum, blöðum og blýöntum milli nemenda og þeir hefjast handa við að stúdera sjálf sig og skissa. Einnig geta nemendur teiknað hvern annann. Skissurnar eru hegndar upp á vegg jafnóðum og skoðaðar með kennara sem gagnrýnir á uppbyggilegan hátt.
Viðfangsefni 2 skýrir sig nokkuð sjálft.