Þekkt verk
 
Teikning
 
Mynstur
 
Skúlptúr
 
Lágmyndir
 
Þemaverkefni
 
 
Leit á vefnum

Mynstur

Ríkarður notaði mynstur og fléttur í útskurði sínum. Hann þróaði sín eigin mynstur jafnframt því að nota hefðbundin mynstur sem hafa verið við líði öldum saman. Í þessu verkefni munu nemendur skoða myndir af útskurði Ríkarðs.

Markmið:
- Að nemendur noti rikardssafn.is
- Að nemendur skoði útskurð Ríkarðs, mynstur og   fléttur sem þar er að finna.
- Að nemendur læri að þekkja mynstur eins og rómanskan teinung og skoði mynstur ísögulegu samhengi.
- Að nemendur læri helstu mynsturreglur eins og spegilmynstur, miðmynstur, mynsturbekki og símynstur.
- Að nemendur átti sig á tenglsum náttúrunnar og mynsturs.
- Að nemendur átti sig á tengslum stærðfræði og mynsturs; www.mcescher.com

Viðfangsefni 1:
Mynstrað teppi

Nemendur vinni sjálfir mynstur frá skissu til kláraðs verks. Þeir skoði fjölbreytileg teppi, með tilliti til mynsturreglna. Hver nemandi teiknar teppi og notar sitt eigið mynstur. Þar sýni hann fram á og notfæri sér það sem fjallað hefur verið um mynsturgerð.
Möguleiki er á samþættingu við textílmennt þar sem teppið verður útfært með aðstoð textílkennara.

Viðfangsefni 2:
Náttúrumynstur

Frá handþrykki til tölvuvinnslu. Notkun á sama forminu t.d. laufblaði og margvíslegar útfærslur.
- Aðferð a: Mála á laufblað og þrykkja á renning
  eða blað eftir fyrirfram ákveðnu mynstri.
- Aðferð b: Teikna laufblað, nota ljósritunarvél til
  þess að stækka og minnka formið og/eða skeyta
  því saman.
- Aðferð c: Skanna laufblað, einfalda formið og
  margfalda í tölvu.

Kennsluaðferð/kennsluskipulag:
Kennari notar skjávarpa til þess að skoða rikardsafn.is með nemendum sínum. Hann útskýrir og sýnir með dæmum mynstur og fléttur í útskurði Ríkarðs Jónssonar. Kennari bendir nemendum á notkun hans á formum úr náttúrunni eins og skeljum, þangi og jurtum.

Þar sem mynsturgerð er oft á tíðum margföldun á sama forminu er stærðfræðin ekki langt undan, þó svo hún sé í sjálfu sér ekki beint tengd verkum Ríkarðs.  Af því tilefni bendi ég á heimasíðu Escher. http://www.mcescher.com

Vinnan fer fram í myndmenntastofu eftir að forvinnu og upplýsingaöflun hefur farið fram. Kennari hefur undirbúið stöðvar með aðstöðu til að teikna, mála og þrykkja allt eftir því hver áherslan verður á úrlausn verkefnisins.



Til baka

OZON-Vefumsjónarkerfið